|
|
29.10.2008 11:41:18 / helga
Yndislegt að vera að fara á þessum tíma til Bretlandseyja á viku námskeið...... Er allavega búin að æfa íslenskuna með færeyskum hreim...... svo ekki komist upp hver ég er  Er allavega búin að fá nægan gjaldeyri til að lifa af þessa viku!! Meira en sumir hafa.... Helgus
»
20.10.2008 13:21:17 / helga
Jæja ég var klukkuð fyrir lifandi löngu og ætla núna að standa við að klára það :
Fjögur störf sem ég hef unnið við um ævina:
1. Kaupfélagið á Blönduósi 2. Félagsþjónusta A- Hún. 3. Verkstjóri sumarvinnu fatlaðra AK. 4. Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Fjórir staðir sem ég hef búið á um ævina:
1. Blönduós 2. Sauðárkrókur 3. Akureyri 4. Reykjavík
Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:
1. Dirty Dancing 2. Notting Hill 3. Annars sofna ég yfirleitt...... 4. .....yfir myndum
Fjórir sjónvarpsþættir í uppáhaldi (þessa stundina):
1. Nágrannar 2. Dagvaktin 3. Swing Town 4. Annars á ég mjög erfitt með að muna eftir að horfa á uppáhaldsþættina
Fjórar bækur sem ég hef lesið oftar en einu sinni:
1. Freaks, Geaks and Asperger Syndrome 2. Draumalandið 3. Les mjög mikið bækur (þrjár á náttborðinu núna) en yfirleitt les ég þær ekki...... 4. ..........oftar en einu sinni
Matur sem er í uppáhaldi:
1. Fylltar kjúklingabringur með öllu tilheyrandi 2. Hamborgarhryggur 3. Slátur 4. Pizza a la Víkurbakki
Fjórar síður sem ég heimsæki daglega (fyrir utan bloggsíður):
1. mbl.is 2. huni.is 3. gesturmani.barnaland.is 4. hotmail.com
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
1. Mallorca 2. Benedorm 3. Patreksfjörður 4. Ítalía
Fjórir staðir sem ég myndi vilja vera á núna:
1. Ennþá á Hótel Rangá með betri helmingnum 2. Dúlla mér heima og halda áfram að koma okkur enn betur fyrir 3. Í stóru knúsi við Gest Mána 4. Á góðri stund með fjölskyldunni minni og tengdafjölskyldunni.... allir saman Fjórir bloggarar sem ég klukka:
1. Hrefna mágkona 2. Erla G. vinkona 3. Vigga bumbulína 4. Berglind frænka
Annars er bara allt gott að frétta af okkur !!!
»
22.09.2008 20:51:19 / helga
Allir að hlusta á ,,samfélagið í nærmynd" á Rás 1 kl. 11:00 í fyrramálið en þar verð ég í viðtali í tengslum við starf mitt sem iðjuþjálfi. Umfjöllunarefnið er að Iðjuþjálfafélag Íslands stendur fyrir skólatöskudögum viðsvegar á landinu þessa vikuna.
Koma svo.....
Kveðja, Helga
»
24.06.2008 08:56:29 / helga
 Hvernig væri að skella sér í Skagafjörð í sumar.
Þar eru ævintýri og afþreying á hverju strái. Viltu sjá ísbjörn, elta ísbjörn eða borða ísbjörn. Endalausir möguleikar sem bjóða upp á gríðarlegt adrenalínkikk. Skagafjörður er staðurinn þar sem hlutirnir gerast aftur og aftur. Ratleikur við Hraun á Skaga alla fimmtudaga, 18 ára aldurstakmark. Spennandi berjaferðir á Þverárfjalli fyrir alla fjölskylduna á þriðjudögum. Ný skotsvæði Skotfélagsins Ósmanns á Þverárfjalli og á Skaga opnuð. Ævintýralegar flugferðirí leyfisleysi þar sem bjarndýra er leitað í lágflugi. Tveggja daga skotnámskeið hjá skyttum norðursins. Uppstoppuð bjarndýr eru til sýnis í sundlaugum, skólum, leikskólum og á öllum veitingastöðum í Skagafirði. Sögustundir hjá Náttúrustofu Norðurlands Vestra alla morgna frá kl. 10-12 um ísbirni og hegðun þeirra. Umhverfisráðherra mætir á einkaflugvél staðinn um leið og ísbjörn birtist. Icelandair býður upp á ódýrt flug frá Kaupmannahöfn í tengslum við bjarndýrafundi. Varðskip til sýnis í Sauðárkrókshöfn alla daga frá 09-17 Stórkostlegur dýragarður opnaður á Skaganum í samvinnu við Dönsk yfirvöld, fjöldi villtra dýra er á svæðinu. Leiðsögn um dýragarðinn fæst hjá lögreglunni á Sauðárkróki. Ís á tilboði í öllum helstu verslunum á svæðinu. Skíðasvæði Tindastóls er í hjarta bjarndýrasvæðisins og því spennandi kostur fyrir skíðafólk. Frábærar hópeflisferðir fyrir fyrirtæki á Höfuðborgarsvæðinu. Girnilegar bjarndýrasteikur á veitingahúsunum. Danskur Bjarnarbjór á tilboðsverði. Daglegir fyrirlestrar frá frægu fólki í 101 um hvernig eigi að fanga ísbirni. Þyrla landhelgisgæslunnar sveimar yfir og upplýsir fjölmiðla og ferðamenn um ástand stofnsins. Læknar verða staðsettir víða um Skagafjörð og mæla blóðþrýsting ferðamanna. Skotheld vesti og ýmiss veiðibúnaður er seldur í Skagfirðingabúð. Rammgerð rimlabúr og músagildrur seldar í Kaupfélaginu. Skagafjörður – iðandi af lífi og dauða. Nýr og spennandi möguleiki í ferðaþjónustu.
»
14.03.2008 11:59:43 / helga
Nú er helgin að ganga í garð með öllum sínum yndislegheitum - hjá mér eru reyndar alltaf mánudagar og alltaf föstudagar. Tíminn líður svo ótrúlega hratt og tel ég að lífið renni svona ljúft þegar menn og dýr eru sáttir við það og sjálfan sig. Ekki það að ég verð að sparka í rassinn á mér ef ég ætla að ná öllum markmiðum fyrir þrítugt. Nei nei ég er nú búin að takast nokkuð mikið á við fullkomnunaráráttu mína og kann orðið að njóta lífsins þó svo að verkefnin bíði og ryk sé út í horni. Held að margir mættu staldra við og spyrja sjálfan sig hvort þeir séu sáttur við lífið eins og það er í dag og hvort þeir séu að tapa sér í veraldlegum hlutum sem eiga ekki að skipta mestu máli þegar lífið og hamingjan er metin!
En annars þá nálgast páskarnir eins og óð fluga! og jólin ný búin. En tengdó og Sigþór eru að koma til okkar í dag og ætla að vera yfir páskana. Alveg verður frábært að fá þau þar sem við höfum ekki séð þau síðan um áramót. Jóndi vinur okkar er búin að vera hjá okkur í tæpar þrjár vikur þar sem hann hefur verið að vinna með Ella. Það er því alltaf fjölmennt og mikið fjör hjá. Hrefna systir Ella og fjölsk. verða líka fyrir sunnan yfir páska og er það enn skemmtilegra að öll fjölskyldan sér á svæðinu og geti eytt tíma saman.
Nú er dekurvika hjá mér ef mætti kalla! skellti mér í nudd í gær og svo er það klipping og litun í dag. Ég mæli hiklaust með Oddnýju á snyrti- og nuddstofunni Verði þinn vilji í Glæibæ. Hún var alveg að finna út hvað ég þurfti. Þegar hún tók herðar, axlir og háls naut ég mín og það var svona vont-gott tilfinning. Hins vegar þegar hún fór í mjóbakið (sem ég finn engan veginn til dagsdaglega) þá mátti ég hafa mig alla við að öskra ekki. Vá hvað þetta var sárt og Vá hvað það kom mér á óvart. En hún ætlar að vinna í mér eitthvað aðeins áfram. Ég verð sagt að segja ykkur smá vandræðalega sögu..... hehe. Þið vitið hvernig það er að sitja á biðstofu, niðursökkin í slúðurblöð með kaffibolla í hönd. Þannig var það þegar ég beið eftir nuddinu. Nuddarinn kom svo og kallaði á mig, rétt fram höndina og sagði ,, Sæl, ég heiti Oddný". Ég leit upp og sagði ,,TAKK" tilbaka!!!!! já já þetta var frekar halllærislegt. En ég kom konunum til að hlægja og hef lengt líf þeirra um nokkrar mínútur.
Svo er það Gestur Máni. Get ekki skrifað hér án þess að minnast aðeins á þennan gullmola. Hann byrjaði í íþróttaskóla núna á miðvikudaginn og kom mér svo á óvart - var búin að ímynda mér að við foreldrarnri þyrftum að halda í höndina á honum og útskýra allt sem kennarinn sagði. En minn maður bara hlustaði og fór eftir fyrimælunum eins og hann hefði aldei gert annað - svo sem ekki í fyrsta skipti sem ég fyllist þvílíku móðurstolti!!! Í vikunni fórum við mæðginin svo á Bókasafnið og er það orðið eitt af því skemmtilegra sem við gerum saman. Hann fór að skoða bækur og leika sér í barnahorninu meðan ég settist niður í kósý sófa að lesa blöðin og svona. Allt í einu heyri ég í honum tala mikið og innilega við aðra mömmu. Hann segir henni að mamma sín eigi sko sautján börn og fer að þylja upp hvað dúkkurnar hans og karlarnir heita...... hehe Næst heyri ég að mamma spyr hvort hann sé stundum úti á leikskólanum en Gestur vildi nú ekki kannast við það. Þá spurði hún hvort hann væri stundum að syngja og svona en Gestur kannaðist ekki heldur við það. Á endanum spurði hún "hvað gerir þú á leikskólanum?" þá stóð ekki á svari "ég er að æfa mig að tala eins og mamma segir mér að gera og svo er ég að læra ensku".... OMG....... veit ekki hvaðan þetta kom í tengslum við leikskólann en hins vegar er ég að lauma inn hjá honum enskum orðum úr ýmsum áttum.
En þetta átti ekki að verða svona löng færsla.
Hafið það gott um helgina og gangið hægt um gleðinnar dyr. Helga Kristín
»
05.03.2008 20:32:01 / helga
 Nú er kominn tími á update en flensan hefur herjað á heimili okkar síðastliðnar tvær vikur. Gestur byrjaði og var heima í viku með háan hita og kvef. Elli tók svo við og liggur enn greyið. En ég stend fast í báðar fætur og held heimilishaldinu á floti en verð alveg að viðurkenna að þegar rútínan fer svo úr skorðum þarf ég að eyða helmingi meiri orku í þetta allt saman – greinilega mjög háð betri helmingnum mínum. Svo auðvitað hefur áhrif að Elli er ótrúlega duglegur heima fyrir og get alveg sagt að ef hann væri það ekki myndi ég ekki meika þetta, sé því enn betur hvað er mikilvægt að skipta verkunum á milli sín og standa saman í að halda heimilinu eins og við viljum hafa það....... Hann fær bara að vaska tvöfalt upp þegar honum batnar..... hehehe.... svo ég tali nú ekki um klósettþrifin!
En annars er febrúar búinn að vera fínn mánuður, óvenju langur og svo byrjaði að birta fyrr á morgnanna – hélt einn daginn að ég væri allt of sein í vinnuna þar sem það var orðið svo bjart. Enn ein staðfesting á hvað venjur stýra lífi okkar endalaust mikið en oft á tíðum ómeðvitað.

Við Elli áttum svo árs “kærustuparsafmæli” og héldum upp á það með skemmtilegum degi, góðum mat og fleiru sem ekki verður farið nánar út í hér......
Ég og Gestur Máni skelltum okkur svo í leikhús að sjá Gosa, held að ég hafi skemmt mér jafnvel ef ekki betur en hann. Ekki minnkaði upplifunin á að sjá hann svona glaðan og hann er enn að ræða um atvik úr leikritinu – trúi því staðfastlega að þetta hafi haft mjög þroskandi áhrif á hann og nú verður farið í leikhús reglulega!
 Fórum svo eina helgi á Blönduós og vorum í góðu yfirlæti hjá okkar nánustu. Ég náði klúbb hjá GÆRUNUM. Þetta var ótrúlega skemmtilegur klúbbur og meira hlegið en venjulega. Vona að ég komist sem fyrst aftur því ég sakna félagsskaparins ótrúlega og ég tala nú ekki um kræsingarnar...... hehe. Annars var alltaf hugmynd að stofna klúbb með nokkrum góðum hérna fyrir sunnan en ekkert hefur orðið úr því.
Við Gestur afrekuðum líka í febrúar að fá okkur kort á Bókasafni Kópavogs. Gestur naut sín ótrúlega vel innan um bækurnar, bæði að skoða og leika í þessu fína húsi og aðstöðunni í barnarýminu. Sá ekki eftir að hafa drifið mig hans vegna og nú er bara spurning að sparka í rassinn á sér og heimsækja safnið reglulega. Við ákváðum líka í leiðinni að kíkja á Náttúrugripasafn Kópavogs og án efa naut Gestur sín þúsundfallt þar. Mæli með að þið farið með börnin ykkar þangað og skoðið ýmis uppstoppuð dýr o.fl. Bara upplifun! Ég er búin að vera með lestaræði frá jólum og er að lesa sjöttu bókina mína á þessum tíma. Sú sjöunda bíður óþreyjufull eftir að núverandi bók klárist því ég er viss um að bókunum líður mjög vel á náttborðinu hjá mér miðað við alla þessa athygli sem þær fá frá mér! Elli er ekki eins hrifinn..... hehehe. Útsaumsæði er líka í hámarki og vonandi klára ég stykkið sem ég er með núna fyrir páska. Allavega markmið!

En ætla að enda þessa samhengislausu útumallt færslu á að óska Jóhönnu og Nonna enn og aftur til hamingju með bumbubúann..........
Og svo ein mynd af gullmolnum sem Spiderman á öskudaginn :-) Lagflottastur

Knús og kram á línuna Helgus
»
25.01.2008 10:47:57 / helga
Búin að komast að því að margir laumulesarar koma á síðuna þar sem heimsóknartíðnin er mjög fín en ekki ber á kommentunum. Eftir nokkrar vangaveltur um bloggheiminn og allt sem honum fylgir er tvennt í stöðunni: Hætta að blogga. Læsa síðunni.
Eins og er heillar fyrri kostuinn mig betur en ég ætla að taka mér frekari tíma til að ákveða hvað verður!! Farið ykkur ekki að voða í ófærðinni.... Helgus
»
22.01.2008 18:08:34 / helga
Rosa fín helgi að baki þar sem veislustúss var ríkjandi!!! Nátta bara gaman.... ----------------------------------------------- Eyddi föstudeginum mikið í að hlusta á fyrirlestra og umræður um einhverfu þar sem Evald Sæmundsen sálfræðingur hér á Greiningarstöð var að verja doktorsritgerð sína og fékk tvo rosa klára prófessora og einhverfusérfræðinga frá Svíþjóð sem andmælendur. Annar andmælandinn, Christofer Gillberg, byrjaði föstudaginn á fyrirlestri á Barnaspítlala Hringsins um einhverfu og var með góðar pælingar inn í framtíðina í þessum geira. Vörnin byrjaði svo kl. 14 og stóð sú prófraun í 3 tíma..... Já 3 tíma!! Spurning hvort þetta hafi verið til þess að ég ákveði að komast aldrei svona langt eða til þess að ég þrái að komast svona langt í námi!! Skemmtilegt verður að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér. Ég er svo meðvirk að ég fékk alveg smá kvíðatilfinningu í mallakútinn þegar vörnin byrjaði. En Doktorinn stóð sig með þvílíkum glæsibrag (enda er hann ættaður frá Blönduósi). Hann bauð til veislu og auðvitað var farið þangað til að skála og fagna þessum áfanga með honum og öllum hinum. Nóg um það! -------------------------------------------------- Aldís frænka Gests Mána kom svo til okkar á fös. kvöldið og var því fagnað með að spila rommý fram á nótt! Gestur Máni var búinn að fá þau skilaboð að hann myndi hitta hana morguninn eftir og að hún myndi sofa í svefnsófanum inni hjá honum. Kl. 06:15 var ég farin að heyra spjall útundan mér og hann búinn að vekja frænku sína. Svo spenntur!!! En sængin og koddinn voru fær í svefnsófann og tók hann kríu í frændsystkinaknúsi. ------------------------------------------------- Laugardagurinn hófst svo með ágætri Kringluferð nema að strákarnir í fjölskyldunni gerðu ekki ráð fyrir að þurfa nánast að draga mömmuna úr fataklefunum. Síðan var haldið í veislurnar góðu, byrjuðum í barnaafmæli hjá Nökkva Blæ. Ummm kræsingar og gott spjall einkenndi andrúmsloftið. Þurftum svo að bruna af stað eftir 1 ½ tíma viðveru í næstu veislu en Björn Ragnar frændi var að útskrifast úr HR! Til lukku með það kæri frændi. Meiri kræsingar biðu okkar, enn meira skemmtilegt spjall, knúserí við litlu frændsystkini, góður Handboltaleikur og auðvitað öl til að þola spennuna í leiknum. Um kvöldið vorum við skötuhjúin í kósýheitum að spila og borða gotterí. ------------------------------------------------ Svaf allt of lengi á sunnudeginum, missti af handboltaleiknum sem Aldís var að spila. En skvísuhittingur var heima hjá Jórunni seinnipartinn og vann hann upp svekkelsið að hafa sofið yfir sig. Mikið var gaman að hitta nokkrar píur síðan í fjölbraut, rifa upp góðar minningar og slúðra um hitt og þetta. Dásamlegt var náttla líka að fá að knúsast aðeins með Sóleyju Sif hennar Hugrúnar þar sem fjarlægðin gerir það að verkum að ég næ ekki að gera það eins oft og ég vildi. ----------------------------------------------- Næsta helgi fer svo líklega líka í veislur þar sem tvö barnaafmæli eru á dagskránni!!! ----------------------------------------------- Ætla ekki að tjá mig um borgarstjórn Reykjavíkur því ég gæti gert út af við ykkur.... en vá hvert er pólitíkin að fara? siðferðiskenndin? Trúverðugleikinn? Valdagræðgin? Vinnubrögðin? Tjá tjá,Helga Kristín
»
14.01.2008 15:53:52 / helga
Nú eru jólin á enda og alltaf þykir mér leiðinlegt þegar jólaljósin eru tekin niður, en það venst eins og hvað annað. --------------------------------
En í tengslum við síðustu færslu þá verð ég nú líka að óska bróður hans Ella, Sigþóri til hamingju með afmælisdaginn 7. jan. Þeir bræðurnir eiga neflilega sama afmælisdag og 19 ár eru á milli þeirra!!! ------------------------------- Ég og Elli dekruðum við okkur á afmælisdaginn hans og áttum það svo innilega inni. Harpa systir Ella passaði fyrir okkur og byrjuðum við á fjögra rétta matseðli á Argentínu Steikhús, ummm þvílíkt góður matur með nautalundum í aðalrétt og þvílíkt rómantískt. Þegar búið var að taka góðan tíma í að renna niður þessum dýrindis mat var ennþá dágóður tími þangað til átti að fara í bíó og var því stefnan tekin í pool, Elli kenndi konunni sinni handtökin og ég er ekki frá því að mér hafi fundist þetta hin fínasta iðja. Við allavega ákváðum að drífa okkur fljótlega aftur og þá ætla ég ekki að vera í pilsi og hælaháum skóm!! Hafði stundum á tilfinningunni að einhver myndi reyna að líta undir pilsið þegar ég var í mikilli einbeitingu við að koma kúlunum niður. Teknir voru tveir leikir og rústaði Elli þeim með stæl og ég stórbætti mig sem poolari. Stefnan var svo tekin í Smárabíó og dekrið helt eðlilega áfram. Við ákváðum að fara í lúxussal með Lazy boy...... ummmm akkurat eins og ég vil hafa það. Eina sem vantaði var teppi yfir mig en allt annað var fullkomið. Við sáum myndina Golden Compass og mæli ég eindregið með henni fyrir þá sem hafa gaman af ævintýra- og léttum spennubrag. Við komum svo heim um 1 leytið endurnærð og brosandi út að eyrum. Takk Harpa æðislega fyrir pössunina, kvöldið hefði ekki orðið að veruleika án þinnar hjálpar.
----------------------------------- Má til með að minnast á að í síðustu viku átti ég svo langt og gott samtal við Hugrúnu vinkonu og var ég alveg endurnærð eftir það. Símtalið minnti mig hversu mikilvægt er að rækta fjölskyldu sína og vini og er ég að hugsa um að helsta markmið þessa árs sé að minna mig á hversu heppin ég er með fjölskyldu og vini, hætta að tala bara og hugsa um það og sýna þeim hversu dýrmætir þeir eru og mikilvægir í lífi mínu.
---------------------------------- Verð að skella inn mynd af okkur fjölskyldunni síðan í myndatöku fyrir jólin. 
Svo eigum við náttla sætasta strákinn í veröldinni 

Segjum það í dag góðir hálsar
»
07.01.2008 14:49:11 / helga
Til hamingju með daginn ástin mín, hlakka svo til að koma heim og eyða deginum með þér og eiga kvöldið fyrir okkur! 1000 Kossar
»
04.01.2008 10:36:18 / helga
Vil byrja á því að óska ykkur öllum gleðilegra jóla og gleðilegs nýs árs með þökkum fyrir það gamla og þær góðu minningar sem árið skildi eftir sig. Tengdó, ásamt bróður Ella, komu til okkar um kvöldið 18. des. og voru hjá okkur yfir jólin. Harpa systir Ella var líka hjá okkur á aðfangadagskvöld og hún og Sindri kíktu svo reglulega í heimsókn. Þetta var skemmtilegur tími og gott og gaman að hafa alla í kringum okkur. Þessir þrír aðaljóladagar voru svo notalegir og einkenndust þeir af góðum mat og bakkelsi, rólegheitum, spilamennsku, sjónvarpsglápi, bókalestri, skemmtilegri samveru, göngutúr svo eitthvað sem nefnt. Gestur Máni var alveg í blóma á þessum tíma og æsingurinn var í hámarki í pakkaflóðinu á aðfangadagskvöld. Ég og Gestur Máni fórum svo með tengdó og Sigþóri norður á Blönduós milli jóla og nýárs þar sem þau ætluðu að vera hjá Hrefnu systur Ella og fjölskyldu yfir áramótin. Elli kom svo 30. des. til okkar og Harpa og Sindri komu líka norður. Fjölskyldur okkar beggja voru því báðar samankomnar á Blönduósi þennan tíma og hittust allir í kaffi hjá mömmu á nýársdag. Gæti ekki hafa verið notalegra að hafa alla okkar nánustu svona stutt frá hverjum öðrum. --------------------------------------------- En nú er kominn tími á að rifja aðeins upp árið með því að stikla á stóru: Janúar: Markverðast og mikilvægast í þessum mánuði er að við Elli fórum að hafa enn meiri samskipti en áður. Nokkrum tíma var varið í að gleðja leynivininn minn í leynivinaleiknum í vinnunni. Fór á kjördæmisþing Framsóknarflokksins í norðvesturkjördæmi. Skellti mér á skemmtilegt þorrablót vökukvenna. Ég vann svo léttvínspottinn...........
Febrúar: Málin þróuðust enn frekar og ég fann ástina í lífi mínu. Fór í 30. ára afmæli til Ólafar vinkonu minnar á Hæli. Skemmtilegt rautt partý! Upplifði skemmtilegt málþing á vegum Sjónarhóls. Skellti mér náttla á öskudagsball með Gesti Mána.
Mars: Fór á Landsþing Framsóknarflokksins. Fór á námskeið fyrir skólanefndir sveitarfélaga á Akureyri. Skellti mér suður á frambjóðendaráðstefnu fyrir alþingskosningar. Var á tveggja daga ráðstefnu á vegum Félagsmálaráðuneytisins: Mótum framtíð. Var eðlilega mikið að “framsóknast,, fyrir kosningar Vann léttvínspottinn......
Apríl: Fermingar...... Fór í fyrsta skiptið á vestfirðina og hitti tengdaforeldra mína í fyrsta skiptið. Vorum þar s.s. yfir páskana í góðu yfirlæti. Héldum upp á 85 ára afmæli ömmu. Tók þátt í að gæsa Ingu Sóley saumósystur.... Söng með Samkórnum Björk í kóraveislunni Söngur um sumarmál. Skellti mér á ágætt leiðtoganámskeið. Var meira að ,,framsóknast”......
Maí: Var að ,,framsóknast” nánasta allan sólarhringinn.... Fór suður á vornámskeið Greiningar- og ráðgjafastöðvar (þar sem ég vinn í dag). Við í stjórn Þroskahjálpar fengum Sjónarhól og Landsamtök Þroskahjálpar í heimsókn í okkar umdæmi. Maraþon.......Kosningar...... Undirbúningur hjá mér og Rönnu hófst fyrir vinabæjamót sem halda átti á Blönduósi í júlí. Sagði upp vinnunni........
Júní: Gestur Máni varð 3 ára og vegleg veisla haldin að því tilefni í sumarblíðu. Þrítugs afmæli hjá Þórði mági mínum – rosa partý. Undirbúningur í hámarki fyrir vinabæjamótið. Við litla fjölskyldan skelltum okkur í bústað í Vatnsdalnum. Fórum í útskriftarveislu til Rönnu og Kristínar Óskar og fögnuðum með þeim. Hélt hátíðarræðu á 17. júní á Blönduósi. Júlí: · Kærkomið fimm vikna sumarfrí....... · Vinarbæjarmótið stóð í viku. · Gestur Máni fékk hlaupabóluna. · Ég og Elli fórum í brúðkaup og skírn til Ingu Sóleyjar og Óla Sveinstaðabænda. · Húnavakan var á sínum stað á Blönduósi. · Eyddum rúmri viku á Patreksfirði hjá tengdó, ferðuðumst þar í kring og höfðum það gott. · Fórum í 85 ára afmæli til Klöru ömmu Ella. · Sótti um vinnu sem iðjuþjálfi á Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins og fór í atvinnuviðtal vegna þess. Ágúst: Síðasta törnin í vinnunni á Blönduósi hófst – yfir haus að gera til að klára allt og koma öðrum inn í starfið. Elli var enn í fríi og var hjá okkur á Blönduósi- var mikið í því að pakka. Gestur Máni fékk staðfest svar um að hann kæmist inn á leikskóla í Kópavogi – hjúkk. Skelltum okkur á Akureyri um versló, vorum hjá Jóhönnu og Nonna. Skruppum á Siglufjörð eina helgi í heimsókn til Danna og Jónu, skoðuðum m.a. Síldarminjasafnið. Ég varð árinu eldri og skelltum við okkur litla fjölskyldan í bústað í Munaðarnesi ásamt Sigrúnu, Boga og Brynjari Daða og Jóhönnu, Nonna og Sævari Eðvald. Frábær helgi. Pakka, pakka og pakka niður.......
September: Ég og Gestur Máni fluttum til Ella í Kópavoginn. Mánuðurinn fór helst í að koma okkur fyrir..... Byrjaði í nýju vinnunni – og var svo sátt og ánægð með þetta starf. Gestur Máni byrjaði á Marbakka. Fjárfesti í fasteign.
Október: Áframhaldandi vinna við að koma okkur fyrir og stökkva á milli búða til að græja allt sem græja átti. Fór á reunion með iðjuskólasystrum mínum, bústaður um helgi á Snæfellsnesi. Bara gaman. Nokkuð mikið var um heimsóknir til okkar.
Nóvember: Gerðum góð kaup á starfsmannakvöldi Hagkaupa J Drifum okkur í myndatöku í Studio101 – þær myndir munu koma inn á barnaland. Fórum í helgarheimsókn til Sigrúnar, Boga og Brynjars Daða á Laugarvatn. Undirbúningur jólanna hófst.....
Desember: Jólaundirbúningur í hámarki + notalegheit í faðmi fjölskyldunnar. Gestur Máni bauð okkur í piparkökukaffi í leikskólanum. Gestur Máni fór í fyrsta skiptið til tannlæknis með sóma. Afrekaði að framkalla myndir fyrir 65 þúsund!! Fór út á borða á Við Tjörnina með teyminu mínu í vinnunni. Gestur Máni fór í 3 ½ árs skoðun og stóð sig með prýði. Ég og Elli héldum okkar fyrstu jól saman í Kópavoginum. Góðar stundir með okkar nánustu, mikið borðað, sofið og slappað af. Silgdi inn í nýtt ár sátt við stundir, afrakstur og minningar síðasta árs og þó sérstaklega sátt við að byrja að byggja upp líf með ástinni minni og yndislega syni okkar.
Þakka þeim sem nenntu og höfðu áhuga á að lesa þessa punkta úr lífi mínu/okkar.
»
14.12.2007 11:16:59 / helga
Jæja jæja jæja..... hó hó hó Ég er búin að vera að njóta aðventunnar og jólaundirbúningsins að ég hef ekki nennt að skrifa. Þetta er svo yndislegur tími og bara 10 dagar þar til jólin ganga í garð. Náttla bara frábært. Jólaundirbúningurinn er í góðum gír hjá okkur hjúum og erum við að vera búin að gera all flest þó svo að checklistinn sé enn langur, allavega eru aðalatriðin að verða klár og það mikilvægasta. Búið er að baka fimm sortir og svo kemur tengdamamma með helling í viðbót. Aldrei erum við svöng með hana í kringum okkur En sem sagt ætlum við litla fjölskyldan að vera heima hjá okkur um jólin og tengdó koma frá Patró ásamt bróður Ella, Harpa systir Ella verður líka hjá okkur. Bara yndislegt að geta verið svona í faðmi fjölskyldunnar þó svo að ég væri til í að hafa mína stórfjölskyldu nær mér á þessu tíma sem öðrum!! Við Gestur Máni förum svo á Blönduós milli jóla- og nýárs og Elli kemur líklega á Gamlársdag. Svo munið að senda jólakortin suður til mín en ekki inn í bréfalúguna í mömmukoti  En verð að minnast á hvað ég fæ frábært frí, á s.s. inni tíma í vinnunni og kemst í jólafrí að hádegi miðvikudaginn 19. des. og byrja að vinna aftur kl. 10:00 2. janúar. Úffff þetta verður nice En úr jólaumræðu yfir í tannlækna..... Gestur Máni fór í fyrsta skiptið til tannsa í vikunni og verð ég að hrósa þessu frábæra tannlæki (Magnús Kristinsson í Faxafeni 11). Hann byrjaði að leyfa Gesti að prófa ýmislegt, t.d. fékk að nota tannlæknastólinn sem rennibraut, sjúga vatn úr glasi með litlu ryksugunni, tannbusta bangsa með stórar tennur upp í sér sem spýtti munnvatni. Tannlæknirinn gaf honum svo tannbursta og notaði borinn til að setja stafina hans í hann..... þetta var bara snilld og ég hef aldrei áður hlegið svona og skemmt mér hjá tannlækni. Gestur Máni hefur mikinn áhuga á stöfunum og þegar við vorum að keyra til tannsa sagði ég honum hvað tannsinn héti og hvaða staf hann ætti. Þegar tannsinn var að setja stafina á tannbustann romsaði Gestur upp úr sér að tannlæknirinn ætti líka stafi og sagði að hann ætti M! Hélt að tannlæknirinn myndi missa augun og hann hélt í smá stund að barnið væri svona bráðgáfað Bara krúttlegt!! Jólamatur í hádeginu í vinnunni......jomm jomm En hvað er málið með þessa jólastorma??? Píndi mig að skrifa nokkrar línur en nenni ekki gefa ykkur meiri innsýn í hvað meira á daga okkar dífur að þessu sinni. En allavega erum við hress og ánægð. Verið bara að hringja oftar kæru vinir og fá ítarlegri upplýsingar um okkur. Jólastemmningin í hámarki og endalaus fiðringur í mallanum!! Jólaknús á línuna, Helga
»
12.11.2007 11:33:01 / helga
Var að skoða jólakortin síðan í fyrra og sprakk úr hlátri þegar ég las krotið frá mínum heittelskaða - en fyrir þá sem vita það ekki vorum við ekki par síðustu jól. 
Innihald kortsins var s.s. á þessa leið: Helga og Gestur Gleðilegt jól og farsælt komandi ár. Þakka allar samverustundirnar á liðnum árum og vonandi verða þær mun fleiri á komandi árum. Hehehe og hann situr uppi með mig í dag og mun aldrei losna við mig!!!! PASSIÐ ÞIÐ YKKUR Á HVAÐ ÞIÐ SKRIFIÐ Í JÓLAKORTIN!!
»
08.11.2007 15:08:47 / helga
Starfsmannakvöld Hagkaupa: Starfsmannakvöldið gekk ótrúlega vel og náðum við að kaupa allt - og meira til- sem við höfðum ætlað okkur að kaupa. Náðum að eyða 70 þúsund!!! Jájá 70 þúsund...... En eftir að búið var að fara yfir strimilinn þá kom í ljós að ef við hefðum ekki verið með afslátt þá hefði þetta kostað 110 þúsund. En nú er hins vegar spurningin, var þetta græðgi eða hagsýni? - Ég er pottþétt á því að þetta var rosaleg hagsýni og náðum við að klára sjö jólagjafir og kaupa hluta í aðrar sjö. Við erum allavega rosalega sátt að hafa komist svona langt með pakkana. Þetta var nú samt svo aðeins kryddað með t.d. tveimur skópörum á mig!! Er skósjúk og hver lætur fram hjá sér fara skódeild með 40% afslætti - það væri ekki hagsýn manneskja Og til að rökstyðja þetta enn betur þá er hagsýnna fyrir konu með skósýki að versla skó með 40% afslætti þar sem hún hefði hvort sem er keypt sér skó fljótlega á fullu verði. Ég er greinilega svo hagsýn. Verð hins vegar að nýta tækifærið og hrósa manninum mínum fyrir að nenna þessu með mér og hrósa honum enn meira fyrir að hafa haft svona gaman að þessu eins og mér og nenna að pæla í öllu þessu sem við vorum/þurftum að hugsa um og ákveða. Dekur: Þetta er nú eiginlega hálfger dekur vika hjá mér, hittist allt svona skemmtilega saman og ekki verra fyrir mig að láta dekra aðeins við mig. Fékk mér í fyrsta skipti (nota bene) steyptar neglur í gær. Emma mamma hennar Kiddu vinkonu er að læra þetta og ég gat ekki látið tækifærið fram hjá mér fara þegar þetta stóð svona nærri mér. Við Kidda skipulögðum líka hitting í kringum þetta naglastúss þar sem hún og Arnar sonur hennar komu til mömmu hennar og við gátum kjaftað meðan verið var að "skvísa mig upp". Eftir vinnu er ég svona að fara í klippingu og litun, er nú reyndar að safna svo þetta er nú eiginlega bara litun. Er að reyna að gefast ekki strax upp á að safna, ætla að þrauka allavega fram að jólum. Hvað hvað er þetta með okkur konur, af hverjum viljum við stutt hár þegar við erum með sítt og sítt þegar við erum með stutt?? Veit að margar konur kannast við þetta syndrome. Kveð í þetta sinn.....
»
05.11.2007 15:26:58 / helga
Við fjölskyldan ásamt Hörpu mágkonu héldum norður yfir heiði seinnipart fimmtudags- fengum fyrsta smjörþefinn af íslenskum vetri og kom sér vel að hafa smellt vetrardekkjum undir fyrir brottför. Góðar móttökur voru á Blönduósi eins og við var að búast enda nánustu ættingjar orðnir spenntir að fá okkur til sín. Held reyndar að Gestur Máni hafi vakið mestu spennuna..... en ég leyfi mér að trúa að að spenningurinn hafi líka tengst okkur skötuhjúum. Fimmtudagskvöldið hófst og lauk með mínum yndislegu saumósystrum, lét sjá mig óvænt í klúbbi og ég held að systurnar hafi alveg kunnað að meta það. Sátum til 2 um nóttina og verð ég nú að segja að ég vorkenndi pínu þeim sem þuftu að vakna í vinnu um morguninn! Ég vaknaði nú samt frekar snemma og dreif mig með Gest Mána í heimsókn í gamla leikskólann sinn til að hann gæti hitt vini sína. Mér finnst svo mikilvægt að hann haldi sambandi við þau þar sem hann á ábyggilega alveg pottþétt eftir að koma oft á Blönduós í heimsókn..... Hann reyndar hittir frændur sína á Urðarbraut 13 oftar en aðra krakka þarna á svæðinu og sækir mikið í að leika við þá – Heppinn þar..... Ég eyddi nokkuð góðum tíma með saumógellunum um helgina þar sem búðin ,,hennar Viggu” var talin á föstudagskvöldið. Við stóðum okkur ótrúlega vel og vorum búnar að telja mest allt kl. 00:30. Ég og Harpa (systir Ella) áttum góða talningartakta þar sem ,,sex” og olíur voru brandarar kvöldsins (hjá okkur). Innihaldið snerist mest um það að ég væri orðin svo heilaþvegin af tölum þegar ég kæmi heim en ég gæti þá allavega bjargað mér þegar ég talaði við Ella með því að segja þar ,,sex”. Hehe þetta fannst okkur fyndið já þegar við vorum orðnar steiktar í þessari talningu. En allavega takk æðislega fyrir skemmtilegt kvöld stelpur...... Kristjana systir á afmæli í dag og Þóri bróðir á morgun og vil ég óska þeim innilega til hamingju með afmælið. Við fengum þessa frábæru afmælismáltíð á laugardagskvöldið hjá Kristjönu, takk fyrir okkur. ------------------------------------ Ég verð nú samt að koma því að hérna að ég er komin með þvílíkan jólafiðring í mallakútinn. Get ekki beðið eftir að kaupa jólagjafirnar, gera jólakortin, baka, skreyta og allt það..... Er ég geggjuð eða líður fleirum svona?? Erum að fara á starfsmannakvöld hjá Hagkaup annað kvöld svo ábyggilega verður tekinn forsmekkurinn á jólagjöfum.... tíhí.... svo erum að fara með Gest Mána í myndatöku á laugardaginn svo þá er hægt að taka ákvörðun um hvað við gerum í sambandi við jólakort. Ég hef undanfarin ár búið þau alltaf til, finnst það svo ótrúlega gaman, núna er spurning hvað við gerum þar sem við ætlum að hafa mynd. Hugsa samt að ég geti ekki sleppt því að dunda mér að búa þau til. Ég ákvað fyrir síðustu jól að taka öll heimagerð jólakort sem ég hef fengið í gengum tíðina og nota þau sem jólaskraut, ég hengdi upp spotta og keypti mér litlar klemmur og hengdi þau upp. Þetta var frábært jólaskraut og gaman að geta nýtt þetta svona þar sem mikil vinna liggur að baki hverju jólakorti. Segjum þetta gott í bili... Helga
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
Heimsóknir
Í dag: 1 Alls: 36033
|